Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Hæfingarstöðvarinnar við Skógarlund


Hæfingarstöðin veitir fólki, ( létta vinnu, þjálfun, umönnun og afþreyingu) sem fötlunar sinnar vegna þarf sérhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu. Þjónustunotendur eru fólk með fötlun sem eru eldri en 16 ára.  Notendur eru 45 og eru flestir  í 50% þjónustu. 

Í Hæfingarstöðinni eru framleiddir ýmsir listmunir og nytjalist úr leir og gleri. Kortgerð er stór hluti skapandi starfs. Myndverk margskonar eru einnig unnin í Hæfingarstöðinni. Framleiðslan er til sölu.

Hæfingarstöðin v/ Skógarlund starfar skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992, og hófst starfsemin síðari hluta árs 1992 á Sólborg.  Árið 1996 flutti starfsemin í núverandi húsnæði. Hæfingarstöðin heyrir undir fjölskyldudeild,  Félagssviðs Akureyrarbæjar.

Markmið:

  • Að notendur upplifi vellíðan og öryggi í Hæfingarstöðinni.
  • Að þjónusta taki mið af þörfum notenda, aldri og fötlun.
  • Að viðhalda og auka færni notenda.
  • Að efla frumkvæði einstaklinga.
  • Að auka fjölbreytni í starfi Hæfingarstöðvarinnar.

Deildarskipting:

  • Afþreyingardeild
  • Deild fólks með miklar fatlanir
  • Ungmennadeild
  • Deild skapandi starfs

Markaður:

Markaður er haldinn tvisvar á ári, að vori og á aðventu.  Þar eru seldir munir sem framleiddir eru í Hæfingarstöðinni.

Deild skapandi starfs sér að mestu um framleiðslu á markaðinn, en aðrar deildir taka einnig þátt í skapandi starfi.

Hæfingarstöðin Skógarlundi - Sími 462 1754